Innlent

Flugmenn kjósa um verkfallsboðun

Allsherjar atkvæðagreiðsla fer nú fram meðal flugmanna Icelandair, um verkfallsboðun, eftir að upp úr slitnaði í viðræðum þeirra við vinnuveitendur hjá ríkissáttasemjara 12. janúar.

Í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir að samningarnir hafi verið lausir í tæpt ár. Búið sé að halda fjölmarga árangurslausa samningafundi, bæði fyrir og eftir að deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í október.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×