Gálgafrestur keyptur á Sólheimum Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. desember 2010 14:28 Guðmundur Pétursson er framkvæmdastjóri Sólheima.
Framkvæmdastjóri Sólheima í Grímsnesi fundaði með framkvæmdastjóra Sveitarfélagsins Árborgar í morgun. Þar var tekin sú ákvörðun að ganga til formlegra samningaviðræðna um framtíð Sólheima. „Það þarf að fara í það mjög hratt og sjá hvort það er hægt að ná ásættanlegri niðurstöðu," segir Guðmundur Á Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima. Stjórnendur Sólheima höfðu áður sagt að heimilinu yrði líklegast lokað um áramótin vegna þess að ekki hafi verið tekið tillit til Sólheima þegar ákveðið var að flytja málefni fatlaðra yfir til sveitarfélaga. Guðmundur segir að löggjafinn hafi algerlega brugðist í málinu. „Menn ganga til almennra samningaviðræðana með erfiða pakka og snúið ástand. En auðvitað vonar maður að það sé hægt að finna lausn á þessu," segir Guðmundur. Hann segir að ákveðið hafi verið á fundinum í morgun að starfsemi Sólheima yrði óbreytt út janúarmánuð. Hann segir rétt að tala um að menn hafi keypt sér gálgafrest í þessu samhengi. „Það er öryggi í þrjátíu daga þannig að menn verða að vinna hratt og vel og sjá hvort það sé hægt að ná góðri niðurstöðu," segir Guðmundur. Hann segist merkja að það sé skilningur hjá Árborg að þetta mál verði að leysa. Guðmundur segir að löggjafinn hafi algerlega brugðist í málinu. „Ég tek undir orð formanns Öryrkjabandalagsins þegar að hann sagði að Sólheimar ættu sér fá a málsvara inni á þingi," segir Guðmundur.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Sjá meira