Innlent

Ríkisvaldið stendur í veginum

Hugmyndir um að taka yfir heilbrigðisstofnunina á staðnum hafa verið lengi í gerjun. fréttablaðið/hari
Hugmyndir um að taka yfir heilbrigðisstofnunina á staðnum hafa verið lengi í gerjun. fréttablaðið/hari
„Vestmannaeyjabær hefur fullan vilja og getu til að reka Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Bærinn veitir nú þegar alla félagslega þjónustu og nánast alla öldrunarþjónustu í bæjarfélaginu.

Samlegðaráhrifin eru mikil og sennilegt er að hægt sé að veita sömu þjónustu fyrir lægra fé eða aukna þjónustu fyrir sama fé. Þetta verður þó ekki gert nema að til slíks liggi ríkur vilji hjá ríkinu og slíkum vilja er ekki fyrir að fara,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, vegna umræðu um að sveitarfélögin taki yfir rekstur heilbrigðisstofnana. Slíkar hugmyndir eru uppi á Suðurnesjum.

Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær er flutningur á rekstri heilbrigðisstofnana frá ríkinu vel gerlegur að mati forsvarsmanna sveitarfélaga og forstjóra heilbrigðisstofnana. Það var hins vegar tilfinning blaðamanns við vinnslu fréttarinnar að þessi umræða hefði fyrst og síðast einskorðast við Suðurnesin.

Þetta vill Elliði leiðrétta og skrifar að Vestmannaeyjabær hafi ítrekað óskað eftir því að taka yfir allan rekstur Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. „Ótal samtöl og fundir hafa verið um þetta mál en strandað á vilja ríkisins. Á seinasta kjörtímabili unnum við að þessu með Guðlaugi Þór [Þórðarsyni], þáverandi ráðherra, en bakslag kom í viðræðurnar í tíð Ögmundar [Jónassonar] og skýrist það ekki síst af breyttum efnahagslegum forsendum,“ segir Elliði. - shá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×