Lífið

24 á hvíta tjaldið

Framleiðsla á kvikmynd byggðum á sjónvarpsþáttunum 24 er í bígerð.
Framleiðsla á kvikmynd byggðum á sjónvarpsþáttunum 24 er í bígerð.
Draumur Kiefers Sutherland um að flytja sjónvarpsþættina 24 yfir á hvíta tjaldið eru í þann mund að rætast því framleiðendur í Hollywood hafa samþykkt að breyta þáttunum í kvikmynd.

Kiefer hefur lengi viljað stíga þetta skref og hugmynd hans hefur verið sú að færa hasarinn í kringum Jack Bauer frá Bandaríkjunum yfir til Evrópu. Handritshöfundur myndarinnar verður sá sami og kom að handriti spennumyndarinnar State of Play með Russell Crowe í aðalhlutverki. Aðrar sjónvarpsþátta­raðir hafa verið fluttar yfir á hvíta tjaldið með ágætum árangri, þar á meðal The Simpsons og Sex and the City.

Jack Bauer ætti því ekki að eiga í neinum vandræðum með að aðlagast breyttum aðstæðum fyrst klaufinn Hómer Simpson gat það.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.