Cruise snýr aftur sem Ethan Hunt 11. febrúar 2010 07:00 Fjórða Mission: Impossible-myndin er á leiðinni og að sjálfsögðu er Cruise í aðalhlutverkinu.
Tom Cruise hefur samþykkt að leika njósnarann Ethan Hunt í fjórðu Mission:Impossible-myndinni. Hún verður frumsýnd í maí á næsta ári, á sama tíma og framhald gamanmyndarinnar Hangover og einni viku eftir frumsýningu Pirates of the Caribbean 4. Myndin verður gerð eftir handriti Josh Applebaum og Andre Nemec og framleiðendur verða Cruise og J.J. Abrams. Sá síðarnefndi leikstýrði síðustu Mission-mynd en verður ekki við stjórnvölinn í þetta sinn. Enn á eftir að ákveða hver tekur við af honum. Athygli vekur að myndin kemur út á vegum Paramount, sem rifti samningi sínum við Cruise eftir að Mission: Impossible III kom út. Launakröfur stjörnunnar þóttu alltof háar og lauk þar með fjórtán ára samstarfi Paramount og Cruise. Svo virðist sem stríðsöxin hafi verið grafin og spilar þar væntanlega inn í að Mission-myndirnar þrjár hafa halað inn 1,4 milljörðum dollara í tekjur fyrir Paramount, eða um 180 milljörðum króna víðs vegar um heiminn. „Tom og J.J. eru mjög hæfileikaríkir og við erum spennt fyrir því að vinna með þeim við að endurreisa þetta heimsþekkta vörumerki,“ sagði forstjóri Paramount. Áður en Cruise sést leysa enn eina þrautina í Mission: Impossible IV, verður hann í hasargríninu Knight and Day sem kemur út í Bandaríkjunum 2. júlí. Þar leikur hann á móti Cameron Diaz í leikstjórn James Mangold, sem er líklega þekktastur fyrir Walk the Line.
Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Sjá meira