Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir hrikalegt ofbeldi gegn eigin börnum 11. febrúar 2010 16:33
Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm yfir karlmanni sem misþyrmdi börnum sínum hrottalega frá sumri 2005 til febrúar 2008. Maðurinn kastaði meðal annars hníf í læri sonar síns. Málið vakti mikla athygli þegar greint var frá því að hann hefði notað son sinn fyrir hnífaskotskífu. Í dómsorði segir að málið sé án fordóma en maðurinn er dæmdur fyrir ólýsanlegan hrottaskap gagnvart börnum sínum. Meðal annars ógnaði hann syni sínum, fæddum 1993, lífláti með hnífi í eitt skipti og í öðru tilviki með eftirlíkingu af skammbyssu, sem drengurinn hélt að væri raunveruleg hlaðin skammbyssa, en maðurinn hélt byssunni að höfði drengsins. Þá lét hann drenginn stela fyrir sig áfengi í tjaldútilegu með því að hóta honum lífláti að öðrum kosti. Maðurinn misþyrmdi dætrum sínum einnig. Önnur þeirra, sem er fædd 1995 og var tíu ára þegar afbrotin áttu sér stað, var handjárnuð við ofn en faðir hennar handlék síðan hníf fyrir framan hana og í nokkur skipti sló hann hana í andlitið. Þá hrinti hann í eitt skiptið dóttur sinni, sem er fædd 1999, fullklæddri ofan í baðkar sem fullt var af köldu vatni og hélt henni þar í stutta stund. Í eitt skipti lokaði maðurinn hana úti í skamman tíma að vetri til þegar kalt var í veðri og barnið á náttfötum einum klæða. Stúlkan var sex ára þegar misþyrmingarnar hófust. Að lokum drap maðurinn heimilisköttinn þannig að sonur hans og yngri dóttir urðu vitni að því. Svo lét hann drenginn henda kettinum í ruslatunnu heimilisins þar sem eldri systirin fann hræið. Maðurinn hlaut átján mánaða dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur en hæstiréttur þyngdi dóminn um hálft ár. Þá skal hann greiða syni sínum tólfhundruð þúsund krónur í miskabætur. Dætrum sínum skal maðurinn borga hvorri sexhundruð þúsund krónur.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Fleiri fréttir Lítil flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Sjá meira