Bjargaði föður sínum með því að beita hjartahnoði í 16 mínútur 11. febrúar 2010 14:59 Frá afhendingu viðurkenningarinnar. MYND/Vilhelm
Rauði kross Íslands hefur valið Magneu Tómasdóttur sem Skyndihjálparmann ársins 2009 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu samkvæmt tilkynningu frá samtökunum. Magnea tók við viðurkenningu Rauða krossins í Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð í dag á hátíðardagskrá Neyðarlínunnar og samstarfsaðila um 112-daginn. Magnea bjargaði lífi föður síns, Tómasar Grétars Ólasonar, þegar hann fór í hjartastopp í sumarhúsi fjölskyldunnar á Hvalsnesi á Suðurnesjum. Magnea var þar ein ásamt honum, 18 mánaða gömlum syni sínum og 8 ára systurdóttur, Ernu Diljá. Tómas var að hvíla sig eftir kvöldmatinn í stofunni og þær frænkur voru að spila við borð í sama herbergi. Erna Diljá tók á eftir því að afi var ekki eins og hann átti að sér að vera, og þegar Magnea sneri sér að föður sínum áttaði hún sig á því að hann hafði misst meðvitund og það kurraði í honum. Magnea náði umsvifalaust í farsímann sinn og hringdi í Neyðarlínuna, tók alla púða undan höfði Tómasar og lét hann liggja áfram á hörðum bekk. Hún byrjaði strax hjartahnoð og blástur með símann á öxlinni og hélt því áfram allt þar til aðstoð barst frá Keflavík um 16 mínútum síðar. Sjúkraflutningamennirnir gáfu Tómasi 2 rafstuð og hjartað fór að slá aftur. Magnea fékk góða aðstoð frá neyðarvörðunum og fannst hún ekki lengur vera ein um verkið eftir að hún komst í samband við Neyðarlínuna. Börnin urðu hrædd og stundum var erfitt að heyra í starfsmanni Neyðarlínu vegna þeirra. Magnea þurfti því að fela Ernu Diljá að taka soninn afsíðis og sjá um hann á meðan, og stóð sú litla sig með stakri prýði. Þetta er í níunda sinn sem Rauði krossinn velur Skyndihjálparmann ársins. Viðurkenninguna hlýtur sá einstaklingur sem hefur á árinu veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt. Sérstök dómnefnd er kölluð til að skera úr um hver hlýtur viðurkenninguna ár hvert en hana skipa fulltrúar frá Rauða krossi Íslands, Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, Neyðarlínunni, Landsspítala háskólasjúkrahúsi, lögreglunni, og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Tilgangur tilnefningarinnar er ekki síður að hvetja aðra til að læra skyndihjálp og vera þar af leiðandi hæfari til að veita aðstoð á vettvangi slysa og áfalla. Þess má geta að Magnea hefur nokkrum sinnum sótt skyndihjálparnámskeið og er ekki í vafa um að það hjálpaði henni í þessum erfiðu aðstæðum þar sem tók langan tíma að fá sjúkrabíl á staðinn. Í flestum tilfellum þegar beiting skyndihjálpar hefur bjargað lífi fólks gerist það við aðstæður sem eru hluti af daglegu lífi. Oftar en ekki er það einhver nákominn sem þarf á aðstoð að halda. Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var í tilefni af 112-deginum, kemur í ljós að 90% þeirra sem hafa sótt námskeið í skyndihjálp á síðustu þremur árum treysta sér til að veita lífsbjargandi aðstoð ef þörf krefur, en aðeins 37% þeirra sem ekki hafa lært skyndihjálp. Það er því ljóst að kunnátta í skyndihjálp getur skipt sköpum fyrir björgun á mannslífi. Ítarlegt viðtal verður við feðginin í Íslandi í dag strax að loknum kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Sjá meira