Lúterskir Hollendingar gefa Þjóðkirkjunni 5000 evrur 11. febrúar 2010 13:45 Lútersk kirkja í Hollandi. Mynd/Biskupsstofa.is
Lúterska kirkjan í Amsterdam hefur sent Þjóðkirkjunni 5000 evrur sem Hjálparstarf kirkjunnar mun sjá um að koma til fólks er þarf á aðstoð að halda hérlendis. Í tilkynningu frá kirkjunni tala forsvarsmenn gjafarinnar um þetta sem táknræna upphæð sem fylgi orðum þeirra um samstöðu með Þjóðkirkjunni og íslenskri þjóð í þeim efnahagsþrengingum sem hún glímir við. Þá segir einnig í tilkynningu frá kirkjunni að þessi stuðningur lúterskra í Amsterdam við systurkirkju í Lúterska heimssambandinu er eitt af mörgum dæmum um stuðning og samstöðu sem lúterskar kirkjur hafa sýnt Þjóðkirkjunni eftir að efnahagsþrengingar hófust. Aðrar kirkjur hafa meðal annars stutt þátttöku kirkjunnar í erlendu samstarfi og Lúterska heimssambandið hefur boðið aðstoð við að skoða skuldir vegna Icesave í ljósi reynslu annarra landa af ólögmætri skuldsetningu. Þá segir í tilkynningunni að slík samstaða sé mikilvæg í samfélagi kirknanna og víða sýnileg í sameiginlegu hjálparstarfi lúterskra kirkna, til dæmis núna á Haítí. Þá minnist Hollendingar með hlýhug stuðnings Íslendinga við Hollendinga árið 1953 þegar mikil flóð ollu því að nærri 2000 manns fórust. Við það tækifæri var gefið út sérstakt frímerki hér á landi til að styðja bágstadda í Hollandi. Lúterski söfnuðurinn í Amsterdam hafði samband við Þjóðkirkjuna þegar fréttir bárust af Icesave-samkomulaginu og spurði um aðstæður og hver áhrif hrunsins væru fyrir íslenska þjóð. Miðlað var reynslu úr starfi kirkjunnar og þörf fólks fyrir að ræða um atvinnuleysi og erfiða skuldastöðu sína. Þá var einnig greint frá því að 300% aukning hefði orðið hefði orðið í innanlands aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar. Það er kærleiksþjónustudeild Lútersku kirkjunnar í Amsterdam sem sendir féð og hefur unnið að þessu í samvinnu við kærleiksþjónustusvið Biskupsstofu. Lúterskir eru minnihlutahópur í Hollandi og telur alls um 25.000 manns. Lúterska kirkjan þar er hluti af stærri, sameinaðri kirkju, en heldur þó eigin söfnuðum. Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands og Jónas Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, hafa sent þakkarbréf til kirkjunnar í Amsterdam og skýrt frá því á hvern hátt féð verði nýtt til að styðja fólk sem á í erfiðleikum eftir efnahagshrunið. „Þessi höfðinglega gjöf er meira en táknræn og hún mun koma að góðum notum." Upphæðin nemur tæpum 900 þúsund krónum.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Sjá meira