Lífið

Sér fyrir endann hjá Kylie

Kylie Minogue greindist með brjóstakrabba fyrir fimm árum.
Nordicphotos/Getty
Kylie Minogue greindist með brjóstakrabba fyrir fimm árum. Nordicphotos/Getty
Söngkonan Kylie Minogue segist enn eiga í erfiðleikum vegna krabbameinsmeðferðar sinnar en hlakkar til þegar henni lýkur á næsta ári. Eins og kunnugt er greindist Kylie með brjóstakrabbamein árið 2005 og nú fimm árum síðar er hún enn í lyfjameðferð sem á að tryggja að sjúkdómurinn taki sig ekki upp að nýju.

Kylie segir þennan tíma hafa verið erfiðan og ekki sé öruggt að allt sé búið þegar meðferð lýkur. „Það verður frábært þegar meðferðinni lýkur snemma á næsta ári. En ég hef heyrt að maður verði svolítið óöruggur til að byrja með án lyfjanna svo þetta verður talsverð aðlögun.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.