Innlent

Jón vill hitta alla en eftirspurnin er gríðarleg

Jón Gnarr er umsetinn.
Jón Gnarr er umsetinn. MYNDIR/GVA

Regína Ásvaldsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra segir að Jón Gnarr borgastjóri sé allur af vilja gerður til þess að hitta sem flesta borgarbúa sem eftir því sækjast. Fulltrúar Frjálslynda flokksins hafa gagnrýnt Jón fyrir að hafa ekki samband og Júlía Hjaltadóttir sagðist á Vísi í dag vera óhress með að hafa beðið í rúman mánuð eftir viðtali hjá borgarstjóra án árangurs.

Regína segir að viljaleysi sé alls ekki um að kenna. Á löngum starfsferli í ráðhúsinu segist hún hinsvegar aldrei hafa kynnst annarri eins ásókn í að fá að hitta borgarstjórann. Á hverjum degi bætist í bunkann óskir um viðtöl, beiðnir um erindi, boð á viðburði og annað, auk þess sem gríðarleg eftirspurn hafi verið eftir viðtölum við borgarstjórann erlendis frá. „Að sjálfsögðu er hann allur af vilja gerður til að hitta fólk," segir Regína en bætir því við að vinsældir hans séu einfaldlega svo miklar að erfitt reynist að koma því við.

Júlía Hjaltadóttir móðir barns í Ölduselsskóla sagðist í samtali við Vísi fyrr í dag vera óhress að fá ekki staðfestingu á því hvort hún muni fá að hitta borgarstjórann yfirleitt, hversu löng sem sú bið gæti orðið. Hún hafi því ekki hugmynd um hvenær eða hvort hún fái áheyrn á næstunni. Regína segir það koma til greina að úthluta viðtalstímum fram í tímann en hafa verði í huga að borgarstjóri þurfi að hafa ákveðið frelsi til að breyta dagskrá sinni með stuttum fyrirvara.

Hvað varðar málefni Frjálslynda flokksins segir Regína það mál vera í vinnslu og að erindi þeirra verði svarað innan skamms.








Tengdar fréttir

Erfiðara að fá fund með Jóni Gnarr en Bin Laden

„Við höfum engin svör fengið," segir Guðjón Arnar Kristjánsson fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins. Hann hefur ásamt, Sigurjóni Þórðarsyni, formanni Frjálslynds flokksins, ítrekað óskað eftir fundi með borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr. Sigurjón segist alltaf fá þau svör að borgarstjóri sé of upptekinn til að veita honum móttöku. Honum finnst þetta óeðlilegt afgreiðsla enda sé hann í forsvari fyrir starfandi stjórnmálaafl á Íslandi og telur hreinlega að um andúð Jóns Gnarr í garð Frjálslynda flokksins sé að ræða.

Bíður eftir borgarstjóra en er númer 200 í röðinni

Móðir barns í Ölduselsskóla í Breiðholti tekur undir þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa að undanförnu þess efnis að erfitt sé að komast í samband við Jón Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur. Guðjón Arnar Kristjánsson fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins sagði í viðtali á Vísi í gær að erfiðara væri að komast í samband við Jón en Osama bin Laden.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×