Íslenska skattkerfið er skilvirkt segir AGS 5. júlí 2010 07:00 Skattkerfið var vanbúið og götótt fyrir banka- og gengishrunið. Búið er að staga í helstu göt og verður það bætt á nýju ári, að sögn fjármálaráðherra. Fréttablaðið/GVA
Íslenska skattkerfið er í grunninn skilvirkt og hafa breytingar bætt úr göllum sem á því voru. Á móti þykir hluti skattkerfisins flókinn og bjóða upp á skattaundanskot. Þetta er á meðal þess helsta sem fram kemur í óbirtri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um íslenska skattkerfið. Ýmsar ábendingar er að finna í skýrslunni, svo sem um það hvernig styrkja megi skattstofna. Eftir því sem næst verður komist mun AGS ekki hafa afskipti af breytingum á skattkerfinu svo lengi sem þær stangist ekki á við efnahagsáætlun AGS og stjórnvalda og séu liður í því að grynnka á skuldum hins opinbera. Starfshópur á vegum fjármálaráðuneytis sem á að leggja fram heildartillögur að breytingum á skattkerfinu fyrir árslok mun hafa skýrslu AGS til hliðsjónar. Gert er ráð fyrir að tillögurnar bæti afkomu ríkissjóðs í samræmi við áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum en miði um leið að því að dreifa skattbyrði með sanngjörnum hætti og hlífa tekjulágum við skattahækkunum. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, segist tiltölulega ánægður með skýrsluna. Hún sé vönduð og innihaldi góðar ábendingar. „Ég held að skattkerfið fái þarna tiltölulega jákvæða umfjöllun. Það voru göt á kerfinu fyrir hrun og ljóst að það var mjög vanbúið. Nú er búið að taka á því. Ýmislegt er þó enn ógert. En skattkerfið er skilvirkt og þjónar tilgangi sínum. Þeir sem hafa gagnrýnt skattkerfið fá ekki liðsstyrk í skýrslunni,“ segir fjármálaráðherra. Hópur sérfræðinga AGS kom til Íslands að ósk á fjármálaráðherra í vor og gerði ítarlega úttekt á skattkerfinu. Skattkerfið hér var borið saman við önnur lönd og gerðar tillögur að breytingum. Steingrímur fékk helstu niðurstöður í hendur í maí og gerði þá ríkisstjórn grein fyrir þeim. AGS leit á skýrsluna sem vinnuskjal fyrir stjórnsýsluna og varð Steingrímur að óska eftir því sérstaklega að hún yrði gerð opinber. Hann fékk endanlega gerð skýrslunnar í hendur fyrir stuttu. „Ég reikna með að hún verði birt á næstu dögum,“ segir ráðherra. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Fleiri fréttir Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Sjá meira