Innlent

Má sekta á öllu höfuðborgarsvæðinu ökutæki sem lagt er ólöglega

Mynd/Pjetur

Reglugerðarbreyting sem gerir lögreglu kleift að leggja gjald á ökutæki sem lagt er ólöglega í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu tók í gildi 1. jún í, segir í tilkynningu.

Áður var slíkt gjald einungis lagt á í Reykjavík. Þetta gerir lögreglu hægara um vik að hafa eftirlit með lagningum ökutækja og gera ráðstafanir þar sem þess er þörf.

Lögreglan vill af þessu tilefni sérstaklega hvetja ökumenn til að fylgja reglum um lagningu ökutækja ekki síður en öðrum reglum sem í umferðinni gilda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×