Innlent

Svafar Gestsson: Sáttur við sjópokann

Valur Grettisson skrifar
Svafar Gestsson, vélstjóri, sáttur við sjópokann.
Svafar Gestsson, vélstjóri, sáttur við sjópokann.

„Jólagjafir ætla ég ekki að ræða hér en fagna því samt að á mínum tæplega 30 ára sjómannsferli að eignast loks góðan sjópoka," skrifar Svafar Gestsson, vélstjóri á Jónu Eðvalds og starfsmaður útgerðarinnar Skinneyjar-Þinganess.

Svafar, sem hefur starfað í um tvö ár hjá útgerðinni, sendi Vísi bréf þar sem hann tekur fram að honum finnist gagnrýni á jólagjöf útgerðarinnar handa starfsmönnum hennar ómakleg.

Vísir greindi frá því í gær að kurr væri á meðal starfsmanna eftir að útgerðin gaf þeim bláan sjópoka merktan nafni fyrirtækisins. Þeir sem starfa í landi veltu því fyrir sér hvað þeir ættu eiginlega að gera við pokann.

Svafari þykir lágt á þeim risið sem gagnrýna gjöfina undir nafnleynd og skrifar:







„Þið auðnuleysingjar sem felið ykkur með nafnleynd bakvið tölvuskjái hafið aldrei migið í saltann sjó né unnið ærlegt handtak og þorið ekki að koma fram undir nafni hef ég bara eitt við að segja: Ragur er sá er við rassinn glímir."

Svafar er sáttur við sína vinnuveitendur sem og samstarfsfólk. Sjálfur skrifar hann:

„Ég vinn fyrir það góða fyrirtæki Skinney-þinganess, sem er undir stjórn margra góðra manna, og ég er stoltur af því að fá að taka þátt í þeirri verðmætasköpun sem þetta góða fyrirtæki skilar til þjóðarbúsins, með góðum skipsáhöfnum, skipstjórnarmönnum ásamt frábæru landverkafólki sem vinnur úr þeim afla sem berst á land með skipum fyrirtækisins hvort sem er að nóttu sem degi og gerir sem mest verðmæti úr aflanum þjóðinni til hagsbóta á þessum erfiðu tímum."

Svafar óskar svo stjórnendum útgerðarinnar, skipsfélögum, landverkafólki og öllum Hornfirðingum gleðilegra jóla, árs og friðar.

„Megi nýja árið færa okkur öllum meiri hagsæld og velfarnað með samstilltu átaki," skrifar hann svo að lokum.








Tengdar fréttir

Starfsfólk Skinneyjar-Þinganess: Niðurlægjandi jólagjöf

„Þetta er bara mjög niðurlægjandi jólagjöf,“ segir starfsmaður útgerðarinnar Skinneyjar-Þinganess en starfsfólk þar fékk forláta sjópoka úr gúmmíi. Pokinn er dökkblár og 60 lítrar, merktur Skinney-Þinganes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×