Innlent

Gefa andvirði 4,5 milljóna

Fjögur íslensk bókaforlög hafa ákveðið að gefa rústabjörgunarsveit Landsbjargar söluandvirði sjö nýrra bóka til að kaupa búnað í stað þess sem skilinn var eftir á Haítí.

Bækurnar verða seldar í Eymundsson fram á mánudag. Söluverðmæti þeirra er um 4,5 milljónir króna. Auk þess mun Eymundsson bæta tíu prósentum af sölu íslenskra barnabóka um helgina í söfnunina.

Félag íslenskra bókaútgefenda hyggst standa fyrir fleiri verkefnum af þessu tagi á næstu vikum til stuðnings björgunarstarfinu á Haítí. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×