Svaraði engu um stuðninginn 13. október 2010 04:00 Ögmundur Jónasson
Ekkert fékkst upp gefið um hvort Ögmundur Jónasson, ráðherra sveitarstjórnar- og samgöngumála, styður fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vitnaði til þess að Ögmundur væri yfirlýstur andstæðingur þess að álver rísi í Helguvík. Hann benti á að álverið væri ein af forsendunum fyrir því að hagvöxtur yrði jafn hár á næsta ári og gert væri ráð fyrir í forsendum fjárlaga. Því spurði hann Ögmund hvort hann styddi fjárlagafrumvarpið. Ögmundur fór tvisvar í pontu til að svara fyrirspurninni, en gaf þó ekkert upp um það hvort hann styddi fjárlagafrumvarpið. Hann sagði menn hafa farið fram úr sér í tengslum við framkvæmdir í Helguvík. Ekki væri búið að tryggja næga orku til að knýja álverið. „Að sjálfsögðu vil ég stuðla að hagvexti og það er forsenda sem við gefum okkur í fjárlagafrumvarpinu að stuðla að hagvexti. En við viljum gera það með fyrirhyggju að sjálfsögðu. Áður en maður reisir álver eða tekur ákvörðun um meiri háttar fjárfestingar af þessu tagi þarf að hafa verið búið um alla hnúta. Það hefur ekki verið gert,“ sagði Ögmundur. - bj
Mest lesið Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Innlent Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fleiri fréttir Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Sjá meira