Innlent

Ekki á leið í frí

Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon

„Það er bara fullkomlega eðlilegt að hún taki örfáa daga fyrir sjálfa sig," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um frí sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók sér í morgun.

Samkvæmt heimildum fréttastofu fór Jóhanna til útlanda með sambýliskonu sinni. Steingrímur segir að Jóhanna hafi tekið þá ákvörðun í fullu samráði við sig og þau verði í daglegu sambandi.

Aðspurður hvort hann sé á leið í frí segir Steingrímur svo ekki vera. Það hafi gengið erfiðlega að finna tíma í slíkt þar sem hann þurfi stöðugt að vera í viðbragðsstöðu.

„Ég fór til dæmis tvisvar til útlanda á síðustu tveimur vikum, með aðeins sólarhringsfyrirvara."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×