Öflugri flugsveitir vekja spurningar 1. september 2010 19:15
Ákvörðun bandaríska flughersins, að senda hingað á morgun mun öflugri flugsveit til loftrýmisgæslu en áður hefur tíðkast, hefur vakið spurningar innan íslenska stjórnkerfisins hvort hún tengist áhuga herforingja NATO á að Íslandi verði komið upp eftirlitsmiðstöð fyrir norðurslóðir. Bandaríski herinn lét í fyrra nægja að senda fjórar F-15 orustuþotur til að annast loftrýmisgæslu Íslands, sama fjölda og sendur var til æfinga hérlendis fyrir tveimur árum. Því vekur það sérstaka athygli að Bandaríkjamenn hafa nú ákveðið að senda tíu þotur til landsins, en þær eru væntanlegar á fimmtudag. Með orustuþotunum koma 175 liðsmenn Bandaríkjahers en einnig eldsneytisbirgðavél og herflutningavélar eru þegar byrjaðar að flytja hingað búnað. Utanríkisráðherra hefur ekki aðra skýringu á þessum aukna áhuga Bandaríkjamanna á íslenska loftrýminu en að þeir telji þetta gott tækifæri til að þjálfa flugsveitina. „Það eru sérstakar aðstæður hérna. Hér erum við nálægt úthafi og hér eru meiri möguleikar tel ég til að æfa tiltekna þætti. Það er eina skýringin sem ég hef á þessu," segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Innan íslenska stjórnkerfisins spyrja menn hins vegar hvort þetta séu merki um vaxandi hernaðarlegt mikilvægi norðurslóða, sem hermálasérfræðingar sjá blasa við með aukinni vitneskju um verðmætar auðlindir, eins og olíu og málma, sem þar megi vinna. Þannig hefur fréttastofan heimildir fyrir því að háttsettur maður innan herja Atlantshafsbandalagsins hafi fyrir ekki allslöngu viðrað þau sjónarmið að Ísland gæti hentað sem miðstöð fyrir hluta af framtíðareftirlitskerfi NATO með norðurslóðum.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira