Innlent

Þarf að skila sér í aðgerðum

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
„Á fundinum komu fram margar athyglisverðar hugmyndir um hvernig hægt sé að vinna að þessum málum,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, eftir fund með um 30 þingmönnum allra flokka í Þjóðmenningarhúsinu í gærkvöldi.

„Þarna var mikill samstarfsvilji og ég vona að hann skili sér í aðgerðum fyrir fólkið, það er það sem mestu skiptir,“ segir Jóhanna. Hún segir að til standi að koma brýnum aðgerðum í gegn strax í þessari viku, en aðrar aðgerðir geti tekið lengri tíma.

Ræða á hugmyndir um almenna niðurfærslu á skuldum á fundi í dag með fulltrúum banka, Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða, auk hagsmunaaðila heimilanna, segir Jóhanna. Hún segir að ná þurfi samfélagslegri sátt um það mál, en erfitt sé að segja til um hversu langan tíma það geti tekið. -



Fleiri fréttir

Sjá meira


×