Innlent

Svaraði engu um stuðninginn

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson
Ekkert fékkst upp gefið um hvort Ögmundur Jónasson, ráðherra sveitarstjórnar- og samgöngumála, styður fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær.

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vitnaði til þess að Ögmundur væri yfirlýstur andstæðingur þess að álver rísi í Helguvík. Hann benti á að álverið væri ein af forsendunum fyrir því að hagvöxtur yrði jafn hár á næsta ári og gert væri ráð fyrir í forsendum fjárlaga. Því spurði hann Ögmund hvort hann styddi fjárlagafrumvarpið.

Ögmundur fór tvisvar í pontu til að svara fyrirspurninni, en gaf þó ekkert upp um það hvort hann styddi fjárlagafrumvarpið. Hann sagði menn hafa farið fram úr sér í tengslum við framkvæmdir í Helguvík. Ekki væri búið að tryggja næga orku til að knýja álverið.

„Að sjálfsögðu vil ég stuðla að hagvexti og það er forsenda sem við gefum okkur í fjárlagafrumvarpinu að stuðla að hagvexti. En við viljum gera það með fyrirhyggju að sjálfsögðu. Áður en maður reisir álver eða tekur ákvörðun um meiri háttar fjárfestingar af þessu tagi þarf að hafa verið búið um alla hnúta. Það hefur ekki verið gert,“ sagði Ögmundur.

- bj



Fleiri fréttir

Sjá meira


×