Innlent

Skref í átt að lausn á skuldavandanum

Fundur um 30 þingmanna úr öllum flokkum í þjóðmenningarhúsinu í gærkvöldi markar spor í þá átt að stjórnmálaflokkarnir nái saman um að taka á skuldavanda heimila og fyrir­tækja, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

„Það hefur komið fram að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eru ekki fullnægjandi, og það sem meiru skiptir er að þær hafa ekki verið nýttar af þeim sem eru í miklum greiðsluvanda," segir Jóhanna. Fundinn sátu þingmenn úr fjórum þingnefndum, auk fimm ráðherra.

„Menn voru sammála um að skerpa þurfi á þeim úrræðum sem í boði eru þannig að þau verði virkari, bæði hjá lánastofnunum og umboðsmanni skuldara. Á fundinum komu fram margar athyglisverðar hugmyndir um hvernig hægt sé að vinna að þessum málum," segir Jóhanna.

„Þarna var mikill samstarfsvilji og ég vona að hann skili sér í aðgerðum fyrir fólkið, það er það sem mestu skiptir," segir Jóhanna. Hún reiknar með að einhverjar aðgerðir verði samþykktar strax í þessari viku, til dæmis að stöðva innheimtuaðgerðir strax hjá þeim sem leiti til umboðsmanns skuldara. Hún segir undirbúning fyrir aðrar aðgerðir taka lengri tíma.

Jóhanna segir þennan fund leggja línurnar fyrir fund sem verður með fulltrúum fjármálastofnana og hagsmunaaðilum heimilanna í dag. Sá fundur muni gefa skýrar vísbendingar um hvort þessir aðilar séu tilbúnir til að vinna að því með stjórnvöldum að finna lausnir.

Meðal þess sem ræða á betur í dag eru hugmyndir um niðurfærslu á skuldum. Jóhanna segir skiptar skoðanir um málið í öllum flokkum og í þjóðfélaginu. Niðurfærsla á skuldum hafi áhrif á banka, Íbúðalánasjóð og lífeyrissjóðina. Samfélagslega sátt þurfi um málið, og erfitt að segja hversu langt sé í að niðurstaða náist.

Jóhanna segir þennan fund að mörgu leyti einstakan. „Ég held það sé ekki hægt að finna marga fundi í sögunni þar sem helmingur þingmanna, úr stjórn og stjórnarandstöðu, hefur setið saman í einlægum og málefnalegum umræðum um hvernig hægt er að leysa vandann."

brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×