Bloodgroup fer á flug á ný 13. október 2010 07:00 Sunna Margrét gekk nýlega til liðs við hljómsveitina Bloodgroup. Við hlið hennar standa Hallur, Janus og Ragnar Láki. fréttablaðið/valli
Nóg er fram undan hjá hljómsveitinni Bloodgroup, sem fékk nýlega til liðs við sig söngkonuna Sunnu Margréti. Eftir Iceland Airwaves-hátíðina heldur hljómsveitin til Bandaríkjanna og svo er Evrópa handan við hornið. „Sunna stendur sig vel og það er mjög spennandi að taka alvöru ferðalag með henni. Þetta verður eldskírn,“ segir Ragnar Láki úr hljómsveitinni Bloodgroup. Sunna Margrét Þórisdóttir tók nýlega við af Lilju Kristínu Jónsdóttur sem söngkona Bloodgroup. Strangt prógramm er fram undan hjá hljómsveitinni, sem kemur tvisvar fram á Iceland Airwaves í vikunni, á Nasa í kvöld og aftur á föstudagskvöld. Eftir að hátíðinni lýkur stekkur Bloodgroup upp í flugvél og heldur til New York og kemur fram á CMJ-tónlistarhátíðinni. „Við spilum á nokkrum tónleikum þar,“ segir Ragnar. „Svo strax eftir áramót tökum við Evrópu eins og hún leggur sig. Ég held að við sleppum þremur, fjórum löndum. Þetta eru eitthvað um 25-30 tónleikar á mánuði. Þetta verður klikkuð vinna.“ Ragnar viðurkennir að sérstaklega mikil pressa sé á nýju söngkonunni, enda leysir hún af systur sína og Halls, sem hefur einnig verið í hljómsveitinni frá upphafi. „Við erum mjög leiðinlegir við hana. Það er bara svipan á æfingum,“ grínast Ragnar og bætir við á alvarlegri nótum: „Sunna hefur verið fersk með okkur. Hún stendur sig alveg ljómandi vel.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu