Innlent

Læknar á Akureyri áhyggjufullir

MYND/Vilhelm

Sjúkrahúsið á Akureyri virðist ekki í stakk búið til að taka við auknum verkefnum frá örðum heilbrigðisstofnunum á Norðurlandi, sem verða að flytja frá sér verefni vegna niðurskurðar á fjárframlögum.

Læknaráð sjúkrahússins á Akureyri vill að heilbrigðisráðherra láti þegar gera stjórnunarlega og rekstrarlega úttekt á spítalanum. Í tilkynningu, sem læknaráðið sendi frá sér í gærkvöldi, kemur fram að læknar hafi verið að hverfa frá spítalanum að undanförnu og erfitt sé að fá lækna í stöður þeirra.

Læknunum líst illa á þróunina og sjá fyrir sér versnandi ástand. Ef ekkert verði að gert sé hætta á að starfssdemi sjúkrahússins koðni niður og standi ekki undir kröfum, sem til þess eru gerðar, segir í tilkynningu læknaráðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×