Innlent

Sýking veldur kjúklingaskorti

Framkvæmdastjórar Bónuss og Krónunnar segja framleiðendur ekki anna eftirspurn verslana.
fréttablaðið/hari
Framkvæmdastjórar Bónuss og Krónunnar segja framleiðendur ekki anna eftirspurn verslana. fréttablaðið/hari
Kjúklingaskortur er í verslunum á landinu sökum salmonellusýkingar sem herjaði á kjúklingabændur fyrr á þessu ári. Einnig hefur nú komið upp kamfýlóbaktersýking á búum. Ekki þarf að farga þeim fuglum eins og þeim sem sýkjast af salmonellu. Kjötið er fryst og síðan selt í verslanir.

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir ástandið slæmt. „Það er gríðarlegur skortur,“ segir Guðmundur. „Það má segja að framleiðendur hafi ekki náð í skottið á sér eftir þau skakkaföll sem fylgdu salmonellunni í sumar.“

Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Krónunnar, tekur undir orð Guðmundar og segist einnig hafa orðið var við kjúklingaskort. „Þetta er vandamál og hefur farið ört vaxandi á síðustu þremur til fjórum mánuðum.“

Matthías Hannes Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs, og Helga Lára Hólm, framkvæmdastjóri Ísfugls, segja þó bæði að enginn skortur sé og fyrirtækin hafi getað afgreitt allar pantanir eins og þau séu vön.

Framkvæmdastjóri Bónuss segir að það sé með ólíkindum að framleiðendur skuli halda því fram. „Fyrst þeir halda þessu fram geta viðskiptavinir vitnað um þetta. Þetta er hlægilegt, búðirnar eru meira og minna tómar.“- sv



Fleiri fréttir

Sjá meira


×