Vilja fjarlægja blómaker fyrir utan bandaríska sendiráðið 29. september 2010 17:08 Borgarfulltrúi vill blómaker í burtu og bendir á að þau ógni líka öryggi nágrannanna.
Á fundi umhverfis- og samgönguráðs í gær, þriðjudaginn 28. september, var tekin fyrir tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar, fulltrúa VG, þess efnis að bandaríska sendiráðinu verði gert að fjarlægja blómaker á bifreiðastæðum og hindranir á gangstéttum fyrir framan húsið. Í tilkynningu kemur fram að ekki fáist betur séð en að heimild sendiráðsins vegna umræddra hindrana hafi runnið út 14. september 2005. Afgreiðslu tillögunnar var frestað til næsta fundar. Þá segir ennfremur í tillögunni að ef sendiráð Bandaríkjanna telji öryggi sínu ógnað með þessum ráðahag er bent á það að öryggi íbúa við götuna er jafnframt í húfi og því best fyrir alla að sendiráðið kæmi sér fyrir á rúmgóðri lóð þar sem rými fyrir öryggisráðstafanir rúmuðust innan lóðamarka. Tillagan var þessi: Umhverfis- og samgönguráð samþykkir að bandaríska sendiráðinu, Laufásvegi 21-23, verði gert að fjarlægja blómaker á bifreiðastæðum og hindranir á gangstéttum fyrir framan húsið innan mánaðar. Jafnframt verði skoðað hvort ekki megi draga úr eða fjarlægja með öllu hraðahindranir á götunni sem settar voru upp að beiðni sendiráðsins. Greinargerð: Á fundi samgöngunefndar Reykjavíkur, 14. september 2004 var samþykkt tillaga gatnamálastjóra frá 10. september 2004 varðandi erindi bandaríska sendiráðsins frá 2. febrúar 2004 um að koma fyrir blómakerum á merktum bílastæðum sendiráðsins. Í samþykktinni fólst jafnframt sú ákvörðun að umferð um gagnstéttina yrði hindruð auk þess sem hraðahindrunum yrði komið fyrir á götunni. Samþykktin gilti í eitt ár eða til 14. september 2005 og átti þá að koma til endurskoðunar. Ekki verður séð í gögnum sem vistuð eru í Skjalaveri borgarinnar við Höfðatorg að endurskoðun hafi átt sér stað en engar málefnalegar ástæður eru fyrir hindrun sem þessari á almannarými frekar en við önnur sendiráð. Telji sendiráð Bandaríkjanna öryggi sínu ógnað með þessum ráðahag er bent á það að öryggi íbúa við götuna er jafnframt í húfi og því best fyrir alla að sendiráðið kæmi sér fyrir á rúmgóðri lóð þar sem rými fyrir öryggisráðstafanir rúmuðust innan lóðamarka. Óski bandaríska sendiráðið þess mun Framkvæmda- og eignasvið sjá um umræddar framkvæmdir á kostnað sendiráðsins.
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Sjá meira