Umhverfisráðherra vill rannsókn á Magma Energy Sweden SB skrifar 10. júlí 2010 12:11
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, vill láta rannsaka starfsemi Magma Energy Sweden fyrirtækisins í ljósi upplýsinga sem hún segir varpa nýju ljósi á málið. Hún hefur rætt við viðskiptaráðherra um að málið verið tekið upp að nýju. Pistlahöfundarnir Teitur Atlason og Lára Hanna Einarsdóttir hafa síðustu daga skrifað um Magma Energy Sweden AB. Í pistlum sínum halda þau því fram að fyrirtækið sé eitt allsherjar sjónarspil. „Þarna er um ákveðna afhjúpun að ræða og ég sé ekki betur en það þurfi að fara fram rannsókn á þessu," segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.„Þau aufhjúpa þessa starfsemi með mjög afgerandi hætti. Þetta er eitthvað sem ekki er hægt að horfa í gegnum fingur sér með." Í pistlum Láru Hönnu, sem skrifar á Eyjunni.is, og Teits Atlasonar kemur fram að Magma Energy Sweden sé skúffufyrirtæki, höfuðstöðvarnar séu lögfræðifyrirtæki í Svíþjóð sem hafi aðeins sinnt ráðgjafavinnu fyrir Magma, og það sé gagngert stofnað til að fara í kringum íslensk lög um fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi. Teitur Atlason, sem búsettur í Gautaborg og bloggar á DV.is, heimsótti hinar meintu höfuðstöðvar, ræddi við lögfræðing sem sagði þetta ekki skrifstofu Magma heldur hefði lögfræðistofan veitt Magma lögfræðilega aðstoð. Þá tók Teitur myndir af húsinu þar sem fram kemur að hvergi er nafn Magma Energy eða eitthvað annað sem bendir til þess að fyrirtækið sé þar til húsa. Lára Hanna bendir einnig á að á heimasíðu Magma Energy í Kanada sé hvergi minnst á dótturfyrirtækið í Svíþjóð. Svandís hefur rætt við viðskiptaráðherra vegna málsins. „Ég heyrði í viðskiptaráðherra eftir hádegi í dag og nefndi það við hann að það væri rétt að slík rannsókn færi fram." Svandís segir að í ljósi þess að nefndin um erlendar fjárfestingar kláraði vinnu sína í Magma málinu á fimmtudaginn, en hinar nýju upplýsingar frá Láru Hönnu og Teiti Atlasyni komi fram eftir það - „þá tel ég einboðið að nefndin fari aftur í málið þar sem upplýsingar sem hún byggði niðurstöður sínar á voru sannarlega ekki fullnægjandi." Fjölmiðlar hafa greint frá því að Magma Energy Sweden AB sé dótturfyrirtæki Magma Energy í Kanada - þannig hafi fyrirtækinu tekist að fara á svig við íslenskar reglur um fjárfestingu erlendra aðila á Ísland. Með því að staðsetja fyrirtækið innan EES var Magma Energy í Kanada gert kleyft að fjárfesta á íslenskum markaði. Þær upplýsingar sem koma fram í skrifum Teits og Láru Hönnu benda hins vegar til þess að Magma Energy Sweden sé ekki dótturfyrirtæki heldur einfaldlega skúffufyritæki með póstfang í Gautaborg.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira