Innlent

Skyndihjálparnámskeið getur bjargað lífi

Miklu getur breytt á slysstað að þar komi að fólk sem nýlega hefur farið á skyndihjálparnámskeið. Það er líklegast til að treysta sér til að veita ókunnugum og bráðveikum eða alvarlega slösuðum einstaklingi skyndihjálp. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var fyrir 112.

Í henni kemur fram að um 90 prósent þeirra sem hafa farið á námskeið á síðustu þremur árum treystir sér til að hjálpa á vettvangi slysa og 65 prósent ef lengra er um liðið. Aðeins 37 prósent þeirra sem ekki hafa farið á námskeið sögðust treysta sér til að veita skyndihjálp við erfiðar aðstæður.

Aðkoma almennings að vettvangi slysa, veikinda og áfalla er viðfangsefni 112-dagsins að þessu sinni, en hann er haldinn 11. febrúar ár hvert víða um heim.

Þá verður skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur, neyðarvörður

112 fær viðurkenningu og 32 börnum verður veitt verðlaun í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Samstarfsaðilar 112-dagsins á Íslandi eru 112, ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkviliðin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Flugstoðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×