Flóknum spurningum ósvarað 10. júlí 2010 04:00 Guðni A. Jóhannesson
Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri segir að breytingar á frumvarpi iðnaðarráðherra um verndar- og nýtingaráætlun kalli á að svarað verði spurningum um stöðu Torfajökulssvæðisins og einstakra svæða á Reykjanesi og í Krýsuvík. Breytingin felur í sér að ekki megi taka nýjar ákvarðanir um að ráðast í virkjanir innan friðlýstra svæða óháð niðurstöðum þeirrar vinnu sem fram hefur farið við gerð rammaáætlunar. Með breytingunni var leystur ágreiningur stjórnarflokkanna sem hafði valdið því að málið komst ekki á dagskrá Alþingis mánuðum saman. „Samkvæmt þessu koma virkjanakostir á friðuðum svæðum ekki til greina," segir Guðni orkumálastjóri. Óvíst sé hvort breytingin muni hafa einhver áhrif í raun en hún feli í sér víðtækari ályktanir um gildi friðunar en hingað til. Verið sé að láta friðun ná til markmiða sem ekki hafa verið skilgreind. Ein af þeim spurningum sem svara þurfi í framhaldinu sé hvort ætlunin sé að útiloka frekari rannsóknir og mat á Torfajökulssvæðinu. Búið sé að leggja mat á svæðið í heild og gefa náttúruverndargildi þess háa einkunn. Eftir sé að skoða einstaka virkjanakosti innan þess. „Það er spurning hvort menn vilja halda áfram að kanna svæðið eða loka því hér og nú," segir Guðni. Eins geti þurft að svara flóknum lagatæknilegum spurningum um stöðu einstakra svæða í Krýsuvík og á Reykjanesi. - pg
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira