Davíð Oddsson: Landsfundur eins og „vorútsala Blómavals“ 10. júlí 2010 10:31 Davíð Oddsson segir að umgjörð síðasta landsfundar flokksins hafi verið eins og uppákoma þar sem „morgunverðarfundur Viðskiptaráðs og vorútsala Blómavals hefðu verið sameinuð í eitt.“ Mynd/ GVA. „
Forystumenn Sjálfstæðisflokksins teygðu sig ótrúlega langt á síðasta landsfundi flokksins til að koma til móts við sérsjónarmið fámenns en ágengs hóps í Evrópumálum," segir Davíð Oddsson, annar tveggja ritstjóra Morgunblaðsins, í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins með Sunnudagsmogganum, en með Reykjavíkurbréfinu sem skrifað er undir fyrirsögninni „Það rofar til í Evrópumálum" birtast stórar myndir af Davíð ásamt gömlum evrópskum leiðtogum eins og Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslara Þýskalands og Jacques Delors, fyrrum fjármálaráðherra Frakka og forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Í Reykjavíkurbréfinu gagnrýnir fyrrverandi formaður flokksins núverandi forystu harðlega fyrir að hafa sýnt Evrópusinnum í Sjálfstæðisflokknum umburðarlyndi en segir: „Fór það svo að landsfundarfulltrúar tóku málin í sínar hendur og afgreiddu skýra ályktun í málinu. Var hún samþykkt með miklum yfirburðum á fundinum, jafnvel þótt allstór hópur manna greiddi atkvæði með málamiðlunartillögunni af hreinni tillitssemi við forystu flokksins." Davíð gagnrýnir einnig umgjörð landsfundar flokksins og segir að menn geri sér grein fyrir því að hafi verið „mistök að láta almannatengslafyrirtæki ráða því að umgjörð síðasta landsfundar var látin gefa þá mynd að fundarmenn væru þátttakendur í uppákomu þar sem morgunverðarfundur Viðskiptaráðs og vorútsala Blómavals hefðu verið sameinuð í eitt. Samkvæmisleikir fundarins báru heitið: Hvar er fálkinn? Er Sjálfstæðisflokkurinn að heiman? Slíkur aulagangur og auglýsingastofubrellur eiga heima í Samfylkingunni." Þá gerir Davíð upp að hluta svokallaða aldamótaskýrslu Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1989, en sumir flokksmenn hafa vísað til þessar skýrslu til að reyna að halda því fram að hann hafi verið hlynntur aðild að Evrópusambandinu. Í Reykjavíkurbréfinu talar Davíð um sjálfan sig í þriðju persónu, en hann var borgarstjóri árið sem skýrslan var skrifuð og formaður hóps sem setti skýrsluna saman. Formaðurinn fyrrverandi víkur að skýrslunni með þessum orðum: „Fyrrnefnd skýrsla virðist um margt ágæt, en ekki hefur þó allt það, sem þar var sett fram, staðist tímans tönn, enda skýrslan komin á þrítugsaldurinn. Á þeim tíma hafa allar þær upplýsingar sem áður vantaði komið fram, meðal annars í fjölmörgum samtölum fyrrverandi formanns skýrslunnar í mörgum samtölum við menn eins og Delors, Santer og Prodi, sem allir voru forsetar framkvæmdastjórnar ESB, auk helstu forystu Evrópuríkja. Og það mega þessir forystumenn eiga að þeir létu aldrei eins og Evrópusambandið væri eitthvað annað en það er, eins og æstir íslenskir aðildarsinnar gera iðulega og reyndar byggja allan grundvöll stefnu sinnar á."
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Fleiri fréttir Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Sjá meira