Innlent

Mótmæla fyrir utan Íslandsbanka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fólk er boðað fyrir utan Íslandsbanka. Mynd/ Vilhelm.
Fólk er boðað fyrir utan Íslandsbanka. Mynd/ Vilhelm.
Samtökin Nýtt Ísland ætla að mótmæla bílalánum fyrir utan Íslandsbanka á Kirkjusandi klukkan 12.15 í dag. Í fréttatilkynningu frá samtökunum segir að Nýtt Ísland muni bjóða bankann upp með sérstöku uppboði. Engin ábyrgð verði tekin á uppboðinu. Skipuleggjendur mótmælanna hvetja fólk til að fjölmenna fyrir utan bankann og þeyta flautur bifreiða sinna í hið minnsta þrjár mínútur til að mótmæla óréttlætinu í íslenska bankakerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×