Innlent

Rætt um ákærur á Alþingi

Þingfundur hefst klukkan hálf ellefu þar sem skýrsla þingmannanefndar um ákærur á fyrrverandi ráðherra verður á dagskrá. Samkvæmt könnun Capacent Gallups fyrir Ríkisútvarpið vilja 64 prósent aðspurðra að Árni Matthiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra verði ákærður, 61 prósent að Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra verði það, 55 prósent að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra verði ákærð og 45 prósent að Bjrögvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðhera verði það. Stefnt er að því að leiða málið til lykta eigi síðar en á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×