Efaðist aldrei um orð svikahrappsins 27. september 2010 05:00 Maðurinn hefur svikið peninga út úr þremur konum, þar af einni íslenskri, sem allar hafa svipaðar sögur að segja.
Þriggja daga réttarhöldum yfir Michael Craig Sundet, 29 ára Norðmanni, lauk á föstudag. Sundet var handsamaður eftir að íslensk kona kærði hann í vor fyrir að hafa svikið út úr sér fé. Eftir handtökuna kom í ljós að að svik hans voru umfangsmeiri en í fyrstu var talið. Samkvæmt ákæru hafði Sundet svikið út úr þrjátíu einstaklingum og fyrirtækjum 700 þúsund norskar krónur, eða sem samsvarar tæpum fjórtán milljónum íslenskra króna. Sundet játaði sök í 27 af 42 ákæruliðum. Konan, sem ekki vill láta nafns síns getið, kynntist Sundet í Noregi þar sem hún var í fimm daga heimsókn. Þau náðu vel saman og ákvað hann að heimsækja hana til Íslands í kjölfarið þar sem hann dvaldi í tæpar þrjár vikur. „Hann sagði að fjölskylda hans væri vel stæð og mamma sín hefði unnið í lottói í Noregi. Þegar mig fór að gruna að ekki væri allt með feldu prófaði ég að senda mömmu hans póst, vegna þess að plönin voru þau að ég ætlaði að flytja út. Hún svaraði um hæl og sagðist hlakka til að hitta mig. Ég átta mig núna á því að hún var með honum í þessu öllu saman," segir konan. „Hann kom rosalega vel fyrir. Var sjarmerandi og sannfærandi. Ég efaðist aldrei um neitt sem hann sagði mér." Konan bar vitni fyrir réttinum í Noregi símleiðis á fimmtudag. Sundet er ekki búinn að játa á sig brotin gegn henni, né tveimur norskum konum sem hafa svipaða sögu að segja. Norskir fjölmiðlar kalla Sundet Kvennasvindlarann. „Þeir sögðu mér að þegar hann var spurður af lögreglunni af hverju hann geri þetta alltaf aftur og aftur, þá hafi hann svarað að það væri svo erfitt að hætta vegna þess að það sé of auðvelt að blekkja konur." Sundet fór af landi brott með 350 þúsund krónur sem hann fékk að láni hjá konunni. „Ég geri mér grein fyrir því að ég fæ þetta mjög líklega aldrei bætt. En ef þetta varð til þess að sporna við frekari glæpum, þá er það þess virði," segir hún. Amund Sand saksóknari segir málið umfangsmikið. „Brotin ná tíu ár aftur í tímann, en fyrir barðinu á manninum urðu bæði konur, karlar og fyrirtæki," segir Sand. „Sundet átti ekki fastan samastað og hélst ekki í vinnu sökum áfengis- og fíkniefnavanda. Hann gisti bara hjá þeim konum sem honum hentaði hverju sinni." Sand krefst þess að Sundet verði dæmdur til sjö til tíu ára fangelsis-vistar. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira