Játar aðild að manndrápi í Reykjanesbæ 14. júní 2010 14:46 Lögreglumenn að störfum. 53 ára karlmaður fannst látinn við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ að morgni 8. maí.
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur játað að vera valdur að dauða 53 ára karlmanns sem fannst látinn og með alvarlega áverka utandyra við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ að morgni 8. maí. Blaðberi kom að hinum látna og hafði samband við Neyðarlínuna. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum að grunur beindist fljótlega að rúmlega þrítugum manni sem var handtekinn í kjölfarið grunaður um að hafa orðið manninum að bana og hefur hann setið í gæsluvarðhaldi síðan 9. maí vegna rannsóknar málsins og almannahagsmuna.Þekktust ekki Fram hefur komið við rannsókn málsins að leiðir mannanna hafi legið saman við Bjarnarvelli fyrir tilviljun. Þeir þekktust ekki en höfðu báðir verið að skemmta sér um nóttina og voru undir áhrifum áfengis. Eftir að mennirnir höfðu átt orðaskipti er talið að yngri maðurinn hafi veist að þeim eldri með þeim afleiðingum að hann hlaut meðal annars alvarlega höfuðáverka og lést af þeirra völdum. Sakborningur hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald allt til klukkan 16 í dag en að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum fyrir Héraðsdómi Reykjaness var hann úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald allt til mánudagsins 12. júlí á grundvelli almannahagsmuna. Lögreglan á Suðurnesjum hefur farið með rannsókn málsins og notið aðstoðar frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn er vel á veg komin en enn er beðið eftir niðurstöðum úr ýmsum sérfræðirannsóknum.
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Fleiri fréttir Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Sjá meira