Þúsundir ágreiningsmála á leið fyrir dóm næstu misseri 9. júní 2010 05:30 Mikið mun mæða á Héraðsdómi Reykjavíkur næstu árin. Öll ágreiningsmál vegna krafna í þrotabú gömlu bankanna verða tekin fyrir þar. Mynd/GVA
Mörg þúsund ágreiningsmál um kröfur í þrotabú föllnu bankanna gætu verið á leið fyrir dóm á næstu misserum. Formenn skilanefnda bankanna eru sammála um að útilokað sé með öllu að íslenska dómskerfið valdi álaginu. Til samanburðar voru í fyrra höfðuð samtals 124 ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta á landinu öllu. Alls eru um 50 þúsund kröfur gerðar í þrotabú stóru bankanna þriggja: um 29.000 í bú Kaupþings, ríflega 12.000 í bú Landsbankans og um 8.700 í bú Glitnis. Á kröfuhafafundum hefur svo til öllum kröfum verið mótmælt og sumir kröfuhafar hafa jafnvel tilkynnt mótmæli við allar framtíðarákvarðanir. Ef ágreiningurinn verður ekki leystur með öðrum hætti kemur að endingu til kasta dómara að ákvarða um kröfurnar. Formenn skilanefnda bankanna eru misbjartsýnir á það hvernig til muni takast að jafna slíkan ágreining. Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, telur líklegt að nær allar kröfur í bú bankans, 29 þúsund talsins, muni að óbreyttu enda fyrir dómstólum. Líklega muni einhverjir kröfuhafanna höfða málin í sameiningu, en þó stefni í að ágreiningsmálin vegna Kaupþings eins muni skipta þúsundum. „Þetta stefnir í mikið kraðak," segir Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans. Hann vonast til þess að stór hluti kröfuhafa muni hætta við dómsmál þegar niðurstöður liggja fyrir í sambærilegum málum. „Ég trúi því ekki að menn fari að reka dómsmál út af hverri einustu kröfu í búið, en maður veit svo sem aldrei," segir hann. Þar að auki segir Lárentsínus að ýmsir kröfuhafar hafi hag af því að skiptin dragist á langinn, til dæmis þeir sem hafa keypt ódýrar almennar kröfur í von um að eignir hækki í verði og dugi fyrir meiru en forgangskröfum. Þeir kröfuhafar kynnu að vilja tefja skiptin með stanslausum málaferlum. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að þar á bæ vinni menn hörðum höndum að því að koma í veg fyrir óþörf dómsmál og tilheyrandi tafir. Til skoðunar sé meðal annars að fá erlenda sérfræðinga sem allir geti sæst á til að ákvarða um fjárhæðir. Þótt Árni sé ekki úrkula vonar um að hægt verði að leysa stóran hluta málanna með þeim hætti segir hann það þó að endingu ákvörðun kröfuhafanna sjálfra hvort mál sé höfðað. Þar skipti miklu máli hve ríkur réttur kröfuhafa sé á Íslandi. Ólíkt mörgum öðrum löndum geti kröfuhafar á Íslandi til dæmis farið með ákvörðun um annarra manna kröfur í búið fyrir dóm. Það geti tafið ferlið mjög.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Fleiri fréttir Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Sjá meira