Metþátttaka í Háskóla unga fólksins 4. júní 2010 13:43 1500 grunnskólabörn eru skráð í Háskóla unga fólksins.
Metþátttaka verður í Háskóla unga fólksins í ár en 1500 grunnskólabörn eru skráð í skólann að þessu sinni. Háskóli unga fólksins opnar upp á gátt á mánudaginn 7. júní og stendur í tvo daga, segir í tilkynningu. Háskóli Ísland stendur fyrir skólanum ár hvert en í næstu viku býðst nemendum og kennurum 6. til 10. bekkjar grunnskóla eftirminnileg ferð á vettvang vísindanna. Vinsældir Háskóla unga fólksins undanfarin ár hafa sýnt svo um munar að ungir Íslendingar heillast af vísindum og fræðum, segir í tilkynningunni. Tekið verður á móti skólahópum á Háskólasvæðinu eftir helgina með lifandi dagskrá um heima og geima vísinda þar sem óvæntir viðburðir og uppákomur bíða gesta. M.a. mun hið landsfræga Sprengjugengi Háskólans fara mikinn. Dagskrá heimsóknarinnar tekur um 80 mínútur og verður víða komið við, bæði innan dyra og utan. Áhersla verður lögð á að kynna fjölbreytt starf allra fræðasviða Háskóla Íslands. Markmiðið er að opna veröld vísindanna fyrir ungu fólki og glæða áhuga þess á vísindum og fræðum. Að þessu sinni verður m.a. boðið upp á innsýn í fjölmörg tungumál, táknmál, menningu og menningarmiðlun, fornleifafræði og handritin okkar. Þá verður horft til himins og sjónum beint að stjörnum, stjörnufræði, líffræði og litningum, brúarsmíði og segulhnjám. Auk þess verður leikið á landsfrægt eldorgel sem tónar vel við jarðvísindin og eldgosafræðin sem hafa verið í deiglunni undanfarið vegna eldsumbrota í Eyjafjallajökli. Nemendur í Háskóla unga fólksins munu glíma við ýmsar þrautir og heilabrot auk þess að skoða náttúruna og umhverfið. Þá kíkja þeir á tennur og beinagrindur, skoða líkamann og huga að heilsu og næringu. Ekki má gleyma mannfræði og þjóðfræði þar sem jafnrétti ber á góma en allt endar með íþróttum og hreyfingu og nesti í boði Háskóla Íslands. Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur hvert sumar í HÍ frá árinu 2004.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að ráðast á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira