Innlent

OR vill að Hveragerði borgi framkvæmdir aftur í tímann

Orkuveita Reykjavíkur setur það sem skilyrði fyrir sölu á Hitaveitu Hveragerðis til Hveragerðisbæjar að bæjarfélagið borgi fyrir allar framkvæmdir svæðinu frá árinu 2004.

Orkuveitan keypti Hitaveituna árið 2004 fyrir 260 milljónir króna en fram kemur í sunnlenska fréttablaðinu að kaupverðið nú gæti verið nálægt milljarði króna. Bæjarstjórn Hveragerðis fundaði með stjórn Orkuveitunnar í gær en Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerði, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að þar á bæ væru menn að fara yfir tilboð orkuveitunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×