Innlent

Segja Heilbrigðisstofnun Blönduóss ekki þola meiri niðurskurð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ef fer sem horfir verður heildarniðurskurður á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi á árunum 2009-2011 um 35%. Þetta segir í samþykkt starfshóps á vegum Starfsmannafélags Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi. Á síðastliðnum tveimur árum hafi gríðarleg hagræðing átt sér stað og ekki sýnilegt að hægt sé að hagræða meira án þess að skerða þjónustu verulega þannig að hætta geti hlotist af.

Starfsmenn segja hingað og ekki lengra, nú verða allir að snúa bökum saman og standa vörð um heilbrigðisþjónustuna og öryggi íbúa þessa héraðs. „Af því tilefni skorum við á alla íbúa, Hollvinasamtök HSB, sveitarstjórnir í Austur-Hún., Stéttarfélagið Samstöðu og fagstéttarfélög að mynda þrýsting á ráðherra heilbrigðismála og ríkisstjórn Íslands til að endurskoða þessar fyriráætlanir," segir í samþykktinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×