Innlent

Þrír lögreglumenn meiddust og yfir 30 rúður brotnar

Yfir þrjátíu rúður voru brotnar í Alþingishúsinu og það atað matarslettum og málningu, þegar um átta þúsund manns mótmæltu aðgerðarleysi Alþingis í málefnum almennings á Ausutrvelli í gærkvöldi. Þá var rúða brotin í Dómkirkjunni.

Ekki kom til beinna átaka lögreglu og mótmælenda, sem kveiktu stóran bálköst á Ausutrvellinum, en mótmælendur létu ýmislegt lauslegt dynja á lögreglumönnum, og meiddust þrír þeirra lítillega þegar þeir urðu fyrir grjótkasti, en um 200 lögreglumenn stóðu vaktina.

Þá var einn mótmælandi fluttur á Slysadeild eftir að hafa orðið fyrir einhverju, sem beint var að Alþingishúsinu.

Tunnur og búsáhöld voru barin á meðan forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína á Alþigni og þingmenn tóku umræðu um hana. Slökkviliðið hafði dælubíl og tvo sjúkrabíla til taks í grennd við Alþingishúsið.

Að lokinni dagskrá þingsins fóru nokkrir mótmælendur suður fyrir Alþingishúsið og grýttu nokkra bíla þingmanna og ráðherra þegar þeim var ekið úr bílageymslunni, og mun bíll fjármálaráðherra hafa orðið einna verst fyrir barðinu á því, samkvæmt heimildum Fréttastofunnar.

Mótmælunum lauk upp úr miðnætti með lítilsháttar stimpingum undir lokin, þegar lögregla var að slökkva í bálkestinum. Engin var þó handtekinn. Hreinsunardeild borgarinnar tók svo til við að hreinsa vettvanginn í nótt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×