Innlent

Verktakar börðust grimmt um Suðurstrandarveg

Fimmtán verktakar börðust grimmt um að fá að leggja síðustu fimmtán kílómetra Suðurstrandarvegar en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Lægsta boð, frá Háfelli, hljóðaði upp á 179 milljónir króna og reyndist aðeins 41 prósent af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 433 milljónir króna. Lægsta boð var þannig 254 milljónum króna undir áætluðum verktakakostnaði. Næstlægsta boð átti Suðurverk, upp á 242 millljónir króna, eða 56 prósent af áætlun.

Síðasti kaflinn er milli Ísólfsskála og Krýsuvíkur og á verkinu að vera að fullu lokið haustið 2012, eftir tvö ár. Kafli milli Þorlákshafnar og Selvogs var opnaður síðastliðinn vetur og í ágústmánuði var slitlag lagt á nýjan kafla við Vogsósa og er nú búið að færa veginn suður fyrir Hlíðarvatn en hann hefur til þessa legið norðan vatnsins. Þá eru KNH-verktakar að vinna í kaflanum milli Krýsuvíkur og Herdísarvíkur en stefnt er að því að hann verði tilbúinn næsta sumar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×