Innlent

Ljósastaur fauk á mannlausan bíl

Bál hvasst hefur verið í vindhviðum á höfuðborgarsvæðinu undir morgun og fauk ljósastaur um koll á Bergstaðastræti í Reykjavík. Hann lenti ofan á mannlausum bíl og skemmdi hann nokkuð.

Þá hafa þjófavarnakerfi sumstaðar farið í gang þar sem vindur hefur komist inn um opna glugga og feykt til gluggatjöldum, sem gefa til kynna mannaferðir, en ekki er vitað um neitt umtalsvert tjón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×