Innlent

Enn alllangt í land í Icesave-deilunni

Sendinefnd AGS býst enn við að Icesave-deilunni verði lokið með samningum. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands.

„En nokkurn tíma getur tekið að ganga frá og samþykkja samning," segir þar. Fram kemur að viðræður um Icesave haldi áfram og að lausn sé fundin á fjölmörgum tæknilegum atriðum. „En nokkur mikilvæg mál standa enn út af, þar á meðal vaxtaákvæði og hvernig lagalegri og efnahagslegri áhættu verður deilt."

Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar AGS, áréttaði á símafundi í gær að lausn Icesave hafi aldrei verið skilyrði AGS, þótt lausn málsins hafi um tíma tafið fjármögnun áætlunar Íslands. Frekari lán frá Norðurlöndum bíði lausnar Icesave. Hann segir hins vegar að fjármögnunin hafi skipt meira máli við fyrstu og aðra endurskoðun áætlunarinnar. Staða Íslands sé nú sterkari hvað fjármögnun varði, þótt fjármögnunar frá Norðurlöndum kunni enn að verða þörf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×