Innlent

Bílvelta á Þrengslaveginum

Bíll valt á Þrengslaveginum til Þorlákshafnar á sjötta tímanum í morgun og var ökumaðurinn fastur í bílnum eftir slysið.

Lögregla kallaði á tækjabíl frá slökkviliðinu og beittu björgunarmenn klippum til að ná 0kumanninum úr bílflakinu. Hann reyndist ekki alvarlega slasaður, en var fluttur á Slysadeild til aðhlynningar. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×