OR endurskoðar ekki bílafríðindi stjórnenda Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. júní 2010 18:44 Keyptur var átta milljóna króna Mercedes Benz lúxusjeppi handa fjármálastjóra OR í maí síðastliðnum á kostnað reykvískra skattgreiðenda.
Orkuveita Reykjavíkur hyggst ekki endurskoða bílafríðindi fjögurra stjórnenda fyrirtækisins en Orkuveitan, sem er að mestu í eigu reykvískra skattgreiðenda, keypti nýlega Mercedes Benz lúxusjeppa handa fjármálastjóranum á sama tíma og boðaðar eru hækkanir á heitu vatni. Það kom eins og skrattinn úr sauðaleggnum aðeins örfáum dögum eftir kosningar þegar greint var frá því að hugsanlega þyrfti að hækka gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur til að ná fimm ára markmiðum um arðsemi. Miðað við þessar áætlanir yrði heita sturtan dálítið dýr eftir kreppu því miðað var við að hækka þyrfti verð á heitu vatni um 37 prósent. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar andmæltu þessu reyndar og sögðu þörf á hækkun ofmetna. Á meðan borgarbúar þurfa hugsanlega að sæta því að greiða hærra verð fyrir heita vatnið, eru menn ekkert á sparnaðarbuxunum hjá Orkuveitunni þegar kemur að bílamálum stjórnenda. Því núna í maí síðastliðnum festi fyrirtækið kaup á Mercedes Benz eðalvagni fyrir fjármálastjóra fyrirtækisins. Jóhann Hauksson, blaðamaður á DV, greindi frá bílakaupunum í blaðinu í dag. Fréttastofa hafði samband við Orkuveituna vegna málsins og samkvæmt upplýsingum þaðan fá fjórir stjórnendur bíl á kostnað fyrirtækisins. Forstjórinn, fjármálastjórinn og tveir framkvæmdastjórar, en um er að ræða tvo Landcruiser jeppa, Nissan Pathfinder og Benz. Í myndskeiði, hér að ofan, má sjá Mercedes Benz jeppann sem keyptur var handa fjármálastjóranum í maí síðastliðnum en gripurinn kostaði 8 milljónir króna. Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, gat ekki rætt við fréttastofu í dag vegna anna en að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa, er um að ræða kjör samkvæmt ráðningarsamningi. Kjörnir fulltrúar borgarinnar lýstu í dag furðu sinni með bílakaupin. Eiríkur sagði í samtali við fréttastofu nú síðdegis að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að endurskoða bílafríðindi stjórnendanna.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira