Innlent

Gagnrýnir fyrirætlanir um skattahækkanir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýnir skattahækkunaráform ríkisstjórnarinnar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýnir skattahækkunaráform ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin áformar enn að ráðast í skattahækkanir í haust, á þeim tíma sem ríki allt í kringum okkur eru að fara í þveröfuga átt, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. Hann sagði að ekki væri horft til þess að búa til aðstæður þar sem verðmætasköpun verði meiri.

Sigmundur Davíð sagði að ríkisstjórninni hefði verið forðað frá því að gera hrikaleg mistök með því að samþykkja Icesave skuldbindingarnar. Viðsnúningurinn í efnahagslífi landsins hefði meðal annars náðst á þessum forsendum. Sparnaðurinn sem hefði hlotist af því að samþykkja ekki Icesave skuldbindingarnar væri líklegast tvöfaldur á við allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum.

Sigmundur Davíð sagði að á hverjum degi flytti ein íslensk fjölskylda á dag til Noregs auk þeirra sem flyttu til annarra ríkja. Þetta ylli því að atvinnuleysistölur væru ekki hærri en raun bæri vitni. Hins vegar væri rangt að tala um að atvinnuleysi væri á undanhaldi.




Tengdar fréttir

Bjartari tímar framundan

Mikill árangur hefur náðst á flestum sviðum samfélagsins. Það er árangur sem bjartsýnustu menn óraði ekki fyrir og hefur vakið athygli erlendis, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar þing tók aftur til starfa í dag að loknu sumarleyfi. Benti hún á að aukinnar bjartsýni gætti, atvinnuleysi hefði minnkað og helstu hagvísar bentu til að bjartari tímar væru framundan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×