Innlent

Báðir enn á gjörgæsludeild

Mynd/Vilhelm
Báðir mennirnir sem misstu meðvitund um borð í fjölveiðiskipinu Hoffelli á Fáskrúðsfirði í gærmorgun er enn á gjörgæsludeild Landspítalans. Annar er laus úr öndunarvél og á batavegi. Hinum er haldið sofandi í öndunarvél.

Slysið varð þegar mennirnir voru að landa gulldeplu úr skipinu og talið er líklegt að súrefnisskortur í lest skipsins hafi orðið til þess að mennirnir misstu meðvitund. Þegar magainnihald fiska byrjar að rotna eyðist súrefni. Þetta ferli er sérstaklega hratt þegar um minni fiska er að ræða líkt og með gulldeplu og loðnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×