Kennurum fækkar um átta á tveimur árum 1. september 2010 05:30 Álftanesskóli. Fækkun bekkja í öðrum bekk hefur valdið óánægju. Fréttablaðið/Valli
Stöðugildum í Álftanesskóla hefur fækkað um átta á síðustu tveimur árum. Nú eru 39 stöðugildi í skólanum en voru 47 skólaárið 2008 til 2009, sem er 20 prósenta fækkun. Nemendafjöldinn er sá sami, eða um 460 börn. Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri segir ástæðuna kröfu um niðurskurð í öllu skólakerfinu. Gjaldþrot sveitarfélagsins bæti hins vegar ekki úr skák. „En þó svo að það hefði ekki orðið gjaldþrota þá hefði samt verið farið í þennan niðurskurð, öll sveitarfélög eru að draga til baka aukafjárveitingar sem þau hafa sett í skólana,“ segir Sveinbjörn. Meðal þess sem fækkun kennara hefur í för með sér er að nemendur í 2. bekk eru í tveimur bekkjum í stað þriggja í fyrra. 45 krakkar eru í árgangnum og 22 og 23 því í bekkjunum. Foreldrar í árganginum voru mjög ósáttir við þessa breytingu, enda hefur verið venjan í Álftanesskóla að hafa ekki tvo bekki fyrr en í 3. bekk, nema árgangurinn sé stærri en 50 börn. Fjallað var um áskorun þeirra til skólayfirvalda um að halda bekkjunum þremur í bæjarstjórn en bæjarstjórn bókaði stuðning við þá ákvörðun skólanefndar að fækka bekkjum. Ingólfur Sveinsson er eitt þeirra foreldra sem voru ósátt við breytinguna. „Mér finnst afleitt að hafa svona stóra bekki á meðan börnin eru enn í öðrum bekk,“ segir Ingólfur sem meðal annars stakk upp á því við foreldra í árganginum að þeir myndu sjálfir borga fyrir þriðja kennarann, en sú hugmynd hlaut ekki undirtektir foreldra. Sveinbjörn segir eðlilegt að foreldrar láti í sér heyra en bendir á að þrátt fyrir fækkun kennara sé meðalstærð bekkja í Álftanesi ekki nema 20 börn. - sbt
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Sjá meira