Segir ráðningu Lúðvíks vanvirðingu við kjósendur 8. júní 2010 11:35 Valdimar Svavarsson er ósáttur. „
Þetta er vanvirðing við vilja kjósenda. Það er alveg ljóst," segir Valdimar Svavarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði um ráðningu Lúðvík Geirssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, en hann hefur hingað til leitt lista Samfylkingarinnar í bænum. Hann bauð sig hinsvegar fram í sjötta sæti í ár og fékk ekki kosningu og ætti því að öllu jöfnu að detta út úr bæjarstjórn. Samfylkingin og Vinstri grænir tilkynntu aftur á móti samstarf flokkanna tveggja í gær. Þar kom fram að Lúðvík yrði bæjarstjóri til 2012. Síðan sest Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti Vinstri grænna, í bæjarstjórastólinn. „Bæjarstjórinn var í baráttusætinu til þess að láta kjósa um sín störf. Eða maður getur í það minnsta túlkað það þannig en hann lýsti því yfir í tveimur pistlum og frétt á Pressunni.is," segir Valdimar um þá ákvörðun Lúðvíks að sitja í baráttusætinu á lista Samfylkingarinnar. Valdimar segir það alveg ljóst að kjósendur höfnuðu Samfylkingunni enda missti flokkurinn tvo menn en áður voru þeir með hreinan meirihluta í bænum. Hann segir að það hafi einnig vakið athygli hversu lítil kosningaþátttaka var í bænum eða um 65 prósent. „Það má ekki gleyma því að það verður mjög stór flokkur til í Hafnarfirði í kosningunum sem heitir auður og er stærri en Vinstri grænir," segir Valdimar um vilja og áfellisdóm kjósenda sem vildu augljóslega eitthvað nýtt að hans mati enda sérstaklega margir sem skiluðu auðum atkvæðaseðlum. Valdimar segist þó eiga erfitt með að sjá hið nýja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, enda nákvæmlega sama staðan og áður utan oddvita Vinstri grænna sem kemur nú inn í bæjarstjórnina. Valdimar lýsir því þannig að Samfylkingin hafi strandað og nú sé hún búin að kasta út björgunarbátnum og þeir haldi áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni Erlent Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira