Fengu ekki nægan vind í reynsluflugið 4. september 2010 06:45 Boeing 787 Dreamliner á Keflavíkurflugvelli. Gangi áætlanir eftir verður þessi þota afhent japanska flugfélaginu Air Nippon Airlines (ANA) á fyrri hluta næsta árs. Flugprófanir þotunnar sem Boeing segir byltingarkennda standa yfir þannig að færa megi sönnur á flughæfni hennar. Fréttablaðið/ÓKÁ
Byltingarkennd ný þota, Boeing 787 Dreamliner, er í fyrsta sinn í reynsluflugi utan Bandaríkjanna. Meðal þess sem prófað er á Keflavíkurflugvelli er flugtak og lending í hliðarvindi. Afhenda á fyrstu vélarnar á fyrsta fjórðungi næsta árs. „Það er stórkostleg upplifun að fá að fljúga svona vél og taka þátt í prófunum á henni,“ segir Randy Neville, tilraunaflugmaður Boeing. Hann var fyrstur til að fljúga nýrri þotu félagsins, Boeing 787 Dreamliner, um miðjan desember síðastliðinn. Hann er nú staddur hér á landi í fyrstu prófunum á flugvélinni sem fram fara utan Bandaríkjanna. „Á Keflavíkurflugvelli eru kjöraðstæður til þess að prófa vélina í hliðarvindi,“ segir hann, en snemma í gærmorgun voru meðal annars framkvæmdar lendingar í sterkum hliðarvindi, bæði með sjálfvirkum búnaði og þar sem flugmaður var við stjórnvölinn. Eftir hádegi þegar sýna átti fjölmiðlum flugið hafði vind lægt og ekkert var flogið. Neville er hér kunnugur staðháttum. Hann hefur reynsluflogið vélum Boeing hér áður og var svo undir lok áttunda áratugarins í flugher Bandaríkjanna um árs skeið á Keflavíkurflugvelli. Boeing Dreamliner er sögð marka tímamót í flugsögunni í því að líkjast meira geimskutlu í hönnun en hefðbundinni þotu. Hún er þó ekki mjög frábrugðin öðrum flugvélum að sjá, utan að gluggar eru stærri og vængir heldur lengri. Vélin á að verða öll hin nútímalegasta, með rafstýrðri skyggingu á gluggum og loftþrýstingi sem er nær því sem gerist á jörðu niðri. Flugþreyta á því að heyra sögunni til með tilkomu þessara véla. Fimm svona flugvélar eru í reynsluflugi um þessar mundir. Í tilkynningu Boeing kemur fram að vél númer tvö sé við prófanir á háflugi og flugi í ofsakulda í Keflavík. Randy Neville upplýsti á kynningarfundi félagsins í gær að í fyrradag hefðo verið lagt upp héðan og hringsólað í þrjá tíma yfir Norðurpólnum. Fram kom á kynningunni í gær að prófanafloti Dreamliner-þotnanna hafi nú lokið nærri 17 hundruð flugtímum af þeim nærri þrjú þúsund sem ætlaðir eru í tilraunaflug. „Við gerum ráð fyrir því að afhenda fyrstu vélarnar viðskiptavinum á fyrsta ársfjórðungi 2011,“ segir Jeff Goehard, sérfræðingur prófana í teymi Dreamliner hjá Boeing. olikr@frettabladid.is Í flugstjórnarklefanum Rich Thomas, tæknimaður hjá Boeing, í flugmannssæti Boeing 787-þotunnar sem nú er í reynsluflugi á Keflavíkurflugvelli.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira