Braut bjórglas á andliti stúlku 8. júlí 2010 14:28 Ýmislegt misjafnt á sér stað í næturlífi Reykjavíkur.
Ung stúlka var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kasta bjórglasi í andlit á annarri stúlku á skemmtistaðnum Prikinu. Atvikið átti sér stað fyrir utan salerni skemmtistaðsins þar sem stúlkurnar rifust heiftarlega. Í dómnum kemur fram að stúlkan sem var dæmd hafi verið inn á klósetti ásamt karlkyns vini sínum. Eitthvað hafi þau ílengst inni á klósetti þar sem þau hafi verið „í miðri sögu". Stúlkan, sem átti eftir að fá bjórglasið í sig hafi barið á dyrnar og drengurinn hafi opnað og útskýrt að ekkert óeðlilegt væri á gangi inn á klósettinu þar sem hann væri „maður homosexual". Mikið rifrildi hafi því næst átt sér stað sem endaði á slagsmálum stúlknanna þar sem var bæði klórað og barið og á endanum hafi hin ákærða kastað bjórglasi í andlit stúlkunnar sem hafði barið á klósettdyrnar. Stúlkan sem var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag er fædd árið 1986. Hún hélt því fram við dómi að glasið hefði „óvart" lent í andliti hinnar stúlkunnar. Dómurinn tók ekki mark á þeim framburði og dæmdi hana í fimm mánaða fangelsi. Stúlkan sem fékk glasið í andlitið beið miska og fékk 250 þúsund krónur í skaðabætur. Héraðsdómur taldi ástæðu til að fresta fullnustu refsingar stúlkunnar sem henti glasinu haldi hún skilorð.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Sjá meira