Innlent

Fundaði með utanríkisráðherra Ungverjalands

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í morgun fund með János Martonyi, utanríkisráðherra Ungverjalands og Pal Schmitt, forseta þings landsins og nýkjörnum forseta.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í morgun fund með János Martonyi, utanríkisráðherra Ungverjalands og Pal Schmitt, forseta þings landsins og nýkjörnum forseta.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í morgun fund með János Martonyi, utanríkisráðherra Ungverjalands og Pal Schmitt, forseta þings landsins og nýkjörnum forseta. Í dag lýkur opinberri heimsókn Össurar til Króatíu og Ungverjalands samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Á fundi utanríkisráðherranna var rætt um skipulag aðildarviðræðna Íslendinga við Evrópusambandið en Ungverjar munu fara með formennsku í ESB á fyrrihluta næsta árs.

Össur og Martonyi ræddu samskipti ríkjanna og efnahagsmál og fór utanríkisráðherra m.a. yfir aðgerðir íslenskra stjórnvalda til að takast á við afleiðingar hruns bankanna.

Ráðherranir lýstu ennfremur ánægju með samstarf landanna jarðhitamálum og voru sammála um að auka það samstarf. Össur lagði í gær hornstein að nýrri hitaveitu í borginni Szentlorinc, sem hönnuð er af íslensku verfræðistofunni Mannviti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×