Hópur Litháa á Íslandi stofnar nýtt íþróttafélag 18. janúar 2010 03:00 Algirdas vill aðstoða innflytjendur, bæði frá Litháen og annars staðar frá, við að aðlagast íslensku samfélagi.fréttablaðið/stefán „
Við viljum sýna að við erum ekki öll slæmar manneskjur,“ segir Litháinn Algirdas Slapikas. Hópur fólks hefur stofnað Íþróttafélag Litháa á Íslandi sem hefur það að markmiði að gefa ungum sem öldnum tækifæri til íþróttaiðkana og að aðstoða innflytjendur við að aðlagast íslensku samfélagi. „Vegna allra þessara neikvæðu frétta í blöðunum þá er þetta eitthvað sem við viljum að sjálfsögðu að bæti ímynd innflytjenda, sem fáeinir einstaklingar hafa skemmt,“ segir Algirdas, sem er formaður félagsins. Um 1.500 Litháar eru búsettir á Íslandi og ætti efniviðurinn því að vera ágætur fyrir þetta nýstofnaða félag. Tilurð félagsins var þátttaka körfuboltaliðsins Lituanica í 2. deild karla síðasta haust. Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, setti það sem skilyrði að stofnað yrði íþróttafélag í kringum liðið og þá fór boltinn að rúlla. Í stjórn félagsins eru þekktir íþróttamenn af litháískum uppruna, þar á meðal Ramune Pekarskyte, handboltakona hjá Haukum, og þau Kristina Kvedarine og Romualdas Gecas sem hafa bæði spilað handbolta hér á landi. Síðar meir vonast Algirdas til að fótbolti og fleiri íþróttir bætist í flóru félagsins og stefnan hefur verið sett á að taka þátt í utandeildinni í fótbolta í framtíðinni.Tekur hann fram að allir séu velkomnir í íþróttafélagið, bæði innflytjendur og Íslendingar. „Þetta byrjaði fyrir svona einu ári þegar ég var að undirbúa litháískt körfuboltamót á Ásvöllum. Það var mjög góð aðsókn og þrettán lið mættu. Í haust leyfði KKÍ okkur svo að keppa í 2. deildinni,“ segir hann. Liðið, sem spilar heimaleiki sína í Vogum, hefur spilað sjö leiki, unnið tvo en tapað fimm. „Þetta er góður árangur því við erum bara með tvo sem hafa stundað körfubolta af einhverri alvöru. Við eigum eftir að styrkjast eftir því sem fram líða stundir.“ Hann er einnig mjög ánægður með stuðninginn sem liðið hefur fengið því hópur Litháa mætir á alla leiki liðsins, sem er frekar óalgengt þegar 2. deildin er annars vegar. Sýnir þetta vel samstöðuna sem ríkir innan raða Litháa á Íslandi.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira